Aðalfundarboðun
Aðalfundur Lífs Styrktarfélags verður haldinn þriðjudaginn 19. mars kl. 19:30 í fundarherbergi 21B á Kvennadeild Landspítala. Aðalfundarstörf verða með hefðbundnum hætti, farið verður yfir starfsemi félagsins síðastliðið starfsár, endurskoðaðir reikningar félagsins verða lagðir fram og kosið verður í stjórn félagsins.
Dagskrá fundarins:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar um starfsemi liðins starfsárs
- Endurskoðaðir reikningar ársins 2023 lagðir fram.
- Lagabreytingar*
- Kjör formanns til eins árs
- Kjör í stjórn til tveggja ára
- Önnur mál
*Stjórn leggur til eftirfarandi breytingar á 3. grein samþykktanna, sjá:
https://www.lifsspor.is/samthykktir/
Núverandi orðalag
3.gr.
Tilgangur félagsins er að styrkja kvennadeild Landspítala, bæta aðbúnað og þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu sem og kvenna sem þurfa umönnun vegna kvensjúkdóma.
Tillaga að breytingum (í feitletruðu):
Tilgangur félagsins er að styrkja kvennadeild Landspítala, bæta aðbúnað og þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu sem og kvenna sem þurfa umönnun vegna kvensjúkdóma. Stjórn Lífs hefur heimild til að styrkja verkefni í sama tilgangi utan Landspítala.
Einnig er um að ræða nokkrar óefnislegar orðalagsbreytingar og lagfæringar a lagatextanum Betur verður gerð grein fyrir þeim breytingum og þær rökstuddar á aðalfundinum.
Allir Lífsfélagar eru hjartanlega velkomnir á fundinn.