Persónuverndarstefna

Líf styrktarfélag
Líf styrktarfélag, kt: 501209-1040, leggur ríka áherslu á persónuvernd og gætir fyllstu varúðar við meðferð persónuupplýsingar.

Vefverslun
Þegar kaup eiga sér stað í gegnum vefverslun okkar safnar Líf nauðsynlegum
upplýsingum til að geta klárað vörukaupin og afgreitt pöntun þína. Við söfnum
upplýsingum til þess að efna samning okkar við þig, þær upplýsingar sem
óskað er eftir eru nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang, kennitala og
greiðsluupplýsingar.

Líf notast við vefverslunarkerfi Shopify International Ltd., írskt fyrirtæki sem er
dótturfélag kanadíska Shopify Inc. Gögn Shopify eru vistuð á Írlandi og
Kanada en einnig í Bandaríkjunum. Shopify er kanadískt fyrirtæki, en Kanada
er meðal þeirra ríkja þar sem lög teljast veita persónuupplýsingum
fullnægjandi vernd í skilningi evrópsku persónuverndar tilskipunarinnar
(GDPR). Þegar Shopify flytur gögn sem hafa verið vistuð til Bandaríkjanna þá
fer það fram á grundvelli reglna um friðhelgisskjöld (e. EU-US privacy shield)
samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1250.

Greiðslur á vefverslun okkar fara í gegnum greiðslukerfi Straums og AUR. Líf
hefur ekki aðgang að greiðslukortanúmerum viðskiptavina né heldur Shopify.
Í vefverslunarkerfi Lífs höfum við aðgang að persónuupplýsingum sem
viðskiptavinur gefur sjáfur upp tengt kaupum sínum á vefnum. Líf heldur utan
um gögnin í bókhaldstilgangi til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt ákvæði
um að halda utan um bókhaldsgögn í allt að 7 ár.

Fréttabréf
Með því að skrá þig á póstlista Lífs höldum við utan um tengslaupplýsingar
sem þú gefur upp í þeim tilgangi að senda þér upplýsingar og fréttir tengt
starfssemi félagsins.

Það er alltaf hægt að afskrá sig af póstlista Lífs með því að smella á
afskráningartengil neðst í hverju fréttabréfi og tölvupósti sem sendur er út.

Lífsfélagar og stakir styrkir frá einstaklingum
Í gegnum vefverslun okkar er hægt að gerast Lífsfélagi og greiða
mánaðarlega styrktargreiðslur að upphæð að eigin vali. Með því að gerast
Lífsfélagi er óskað eftir helstu persónuupplýsingum til að ganga frá greiðslum.
Þær upplýsingar eru einnig nýttar til að halda utan um félagaskrá, til að geta
haft samband við Lífsfélaga ef upp koma vandamál tengt greiðslum og til að
framfylgja upplýsingagjöf varðandi bókhaldslög. Allar greiðslur fara í gegnum
greiðslumiðlun Straums og hefur Líf ekki aðgang að kortaupplýsingum.
Einnig er hægt að styrkja Líf með stakri millifærslu á bankareikning félagsins
sem uppgefinn er á heimasíðu okkar. Líf heldur utan um þær upplýsingar
samkvæmt reglugerðum um bókhaldsskil.

Fótspor
Líf notar fótspor (e. cookies) á heimasíðu sinni í þeim tilgangi að bæta
notendaupplifun viðskiptavina. Fótspor geta innihaldið texta, númer og/eða
upplýsingar eins og dagsetningar og eru notuð til að geta aðlagað upplifun að
t.d. stýrikerfi, búnaði, staðsetningu notenda og fleira . Líf styðst við fótspor frá
þjónustuaðila okkar og má þar nefna m.a. Google Analytics. Það hjálpar
okkur hjá Líf að uppfæra og bæta þjónustu við okkar viðskiptavini eftir þeirra
þörfum. Líf deilir ekki persónuupplýsingum sem koma í gegnum síðu okkar
með þriðja aðila.

Breytingar á stefnu
Við endurskoðun persónuverndarstefnu okkar reglulega til þess að tryggja að
hún uppfylli skyldur persónuverndarlaga.Líf styrktarfélag, Pósthólf 70, 270 Mosfellsbær, Sími: 833 3330, lif@lifsspor.is

Skilmálar þessir gilda um sölu á vörum í vefverslun Líf styrktarfélags. Við kaup á
vörum í vefversluninni undirgengst viðskiptavinur skilmálana. Upplýsingar á
vefsíðunni eru birtar með fyrirvara um bilanir, vírusa eða innsláttarvillur.

Afhending vöru
Afhendingartími vöru er 1 - 3 virkir dagar en gæti tekið lengri tíma á álagstímum.
Pósturinn afhendir pantanir en hægt er að sækja vörur samkvæmt samkomulagi.
Vinsamlegast sendið póst á lif@lifsspor.is ef óskað er eftir að sækja vörur í stað
þess að fá sent.

Afhending-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins gilda um afhendingu
vörunnar.
Líf styrktarfélag áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra
verðupplýsinga eða annarra mistaka.

Verð á vöru
Verð á síðunni eru í íslenskum krónum og með VSK.
Líf styrktarfélag áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara og afturkalla
tilboð hvenær sem er.

Skilafrestur
Viðskiptavinur hefur rétt á að skila vöru innan 14 daga frá því að viðskiptavinur
veitti vörunni viðtöku og fá hana að fullu endurgreidda. Eingöngu er hægt að skila
vöru sé hún með órofnu innsigli og í óskemmdum upprunalegum umbúðum.
Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja.

Endurgreiðsla er framkvæmd ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða
ranga/gallaða vöru.

Hægt er að skila vöru með því að senda hana ásamt kvittun á: lif@lifsspor.is

Röng vara / Galli á vöru
Ef viðskiptavinur hefur fengið afhenta ranga eða gallaða vöru mun Líf
styrktarfélag annað hvort, að vali viðskiptavinar, endurgreiða vöruna ásamt
sendingarkostnaði eða láta viðskiptavin hafa nýja vöru án frekari kostnaðar eða
endurgjalds.

Tilkynninga skal Líf styrktarfélagi um ranga eða gallaða vöru í síma: 833 3330
eða með því að senda okkur póst á netfangið lif@lifsspor.is.

Styrkir
Hægt er að gerast að gerast Lífsfélagi með mánaðarlegum styrktargreiðslum.
Lífsfélagar geta sjálfir ráðir upphæð á mánaðarlegu framlagi sínu. Það er alltaf
hægt að segja upp styrktaráskrift með því að senda tölvupóst á lif@lifsspor.is.
Taka þarf fram fullt nafn og kennitölu.

Einnig er hægt að styrkja félagið með stökum styrk með upphæð að eigin vali.
Hægt er að millifæra beint á reikning félagsins eða ganga frá greiðslu í gegnum
heimasíðuna www.lifsspor.is. Einnig er hægt að greiða með AUR appinu í
númerinu 123 833 3330.

Styrkir fást ekki endurgreiddir.

Breytingar á skilmálum og úrlausn deilumála
Um skilmála þessa gilda íslensk lög, þ.m.t. ákvæði laga um neytendakaup nr.
48/2003 og laga nr. 16/2016 um neytendasamninga.
Líf styrktarfélag áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum þessum. Breytingar
taka gildi eftir útgáfu uppfærðra skilmála á vefsíðu Líf styrktarfélags. Rísi
ágreiningsmál milli Líf styrktarfélags og viðskiptavina félagsins skal það rekið fyrir
Héraðsdómi Reykjaness.

Um vinnslu persónuupplýsinga vísast til persónuverndarstefnu Líf styrktarfélag
sem lesa má hér.