Blómstraðu, með bættri kvenheilsu - málþing Lífs
Vera Vidisdottir
Líf styrktarfélag stóð fyrir málþingi undir yfirskriftinni "Blómstraðu, með bættri kvenheilsu" sem fjallaði um víðtæka þætti er snúa að kvenheilsu. Málþingið var haldið þann 3. mars í sal Deloitte á Íslandi
Við fengum í lið með okkur frábæra fyrirlesara sem héldu ólík erindi er snúa að kvenheilsu. Á málþinginu okkar í ár tók fyrst til máls Ebba Guðný Guðmundsdóttir (Pure Ebba) sem fjallaði um "Hvað er góð heilsa?" Næst á svið var Þorgerður Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari sem fjallaði um grindarbotninn og lífsgæðin tengd honum. Þá tók við Helga Guðný hjá Núna Co. Wellness Studio við sem fjallaði um mikilvægi hreyfingar. Eftir stutt hlé var komið að Kristínu Þóru Haraldsdóttur, leikkonu sem fjallaði um persónulega reynslu af kulnun á mjög skemmtilegan hátt. Síðust á svið var Berglind Guðmundsdóttir hjá Lífsgleðinni sem tók fyrir hvíld sem uppspretta lífsgleði.
Við hjá Líf viljum þakka öllum kærlega fyrir komuna og við viljum líka þakka fyrirlesurunum okkar sérstaklega fyrir frábær erindi, góða fræðslu, skemmtilegar umræður og mikinn hlátur. Takk allar kærlega fyrir að leggja okkur lið og deila ykkar sérþekkingu með okkur.
Við hlökkum til að endurtaka leikinn að ári.