Við viljum þakka ykkur kærlega fyrir þátttökuna í Lífssporinu í ár, góðgerðahlaupinu okkar sem fram fór 19. maí við frábærar aðstæður í Nauthólsvík. Hlaupið var í þriðja sinn haldið í góðu samstarfi við Útilíf og Sjóvá, aðalstyrktaraðila hlaupsins og þökkum við þeim kærlega fyrir frábært samstarfs.
Það var mjög ánægjulegt að sjá allan þennan fjölda saman komin til að leggja góðu málefni lið. Í ár söfnuðu rúmlega 1.8 milljón krónur að meðtöldum 500. þús. kr. styrk frá Sjóvá.
Þátttakendur voru á öllum aldri, sá yngsti 8 mánaða. og sá elsti 70 ára. Hlaupið var FRÍ vottað og var mjög ánægjulegt að sjá hve margir hlauparar voru að ná frábærum tíma.
Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar gáfu vinnu sína, vörur eða lögðu söfnuninni lið með einum eða öðrum hætti og viljum við hjá Líf einnig þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn
Hlökkum til að sjá ykkur að ári og takk fyrir stuðninginn