Lífssporið - góðgerðahlaup Lífs styrktarfélags
Vera VidisdottirLÍF styrktarfélag heldur í góðu samstarfi við aðalstyrktaraðila hlaupsins Útilíf og Sjóvá, götuhlaupið Lífssporið þriðjudaginn 19. maí.
Hlaupið verður ræst þriðjudaginn 19. maí, kl. 18 við Braggann í Nauthólsvík og verður hlaupið/gengið um Fossvogsdalinn. Sameiginleg upphitun hefst kl. 17:45 við rásmarkið.
Boðið verður upp á 5 km og 10 km hlaupi með flögutímatöku (Tímataka ehf) ásamt 3 km göngu/skemmtiskokki án tímatöku. Allar nánari upplýsingar og skráning í hlaupið fer fram hér: https://netskraning.is/lifssporid/
Hlaupið er FRÍ vottað sem gefur hlaupurum kost á að fá úrslit sín skráð í afrekaskrá.
*Allir sem skrá sig fyrir 17. maí komast í pott og eiga möguleika á að vinna glæsilegt Garmin Forerunner® 165 Music hlaupaúr.
Glæsileg verðlaun í boði Útilífs verða veitt fyrir 1. 2. og 3. sæti karla og kvenna í 5 km og 10 km hlaupi og Sjóvá veitir tveim heppnum þátttakendum glæsileg hlaupaúr. Auk þess sem fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna verður veitt þátttakendum úr öllum flokkum.