
Lífssporið - styrktarhlaup Lífs styrktarfélags
Vera VidisdottirLÍF styrktarfélag heldur í góðu samstarfi við aðalstyrktaraðila hlaupsins Útilíf og Sjóvá, götuhlaupið Lífssporið þriðjudaginn 20. maí.
Hlaupið verður ræst þriðjudaginn 20. maí, kl. 18 við Braggann í Nauthólsvík og verður hlaupið/gengið um Fossvogsdalinn. Sameiginleg upphitun hefst kl. 17:45 við rásmarkið.
Boðið verður upp á 5 km og 10 km hlaupi með flögutímatöku (Tímataka ehf) ásamt 3 km göngu/skemmtiskokki án tímatöku. Allar nánari upplýsingar og skráning í hlaupið fer fram hér: https://netskraning.is/lifssporid/
Hlaupið er FRÍ vottað sem gefur hlaupurum kost á að fá úrslit sín skráð í afrekaskrá.
*Allir sem skrá sig fyrir 18. maí komast í pott og eiga möguleika á að vinna glæsilegt Garmin Forerunner® 165 Music hlaupaúr.
Glæsileg verðlaun í boði Útilífs verða veitt fyrir 1. 2. og 3. sæti karla og kvenna í 5 km og 10 km hlaupi og Sjóvá veitir tveim heppnum þátttakendum glæsileg hlaupaúr. Auk þess sem fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna verður veitt þátttakendum úr öllum flokkum.
Í ár rennur allt söfnunarfé upp í kaup á ómhermi fyrir Kvennadeild Landspítalans. Þær konur sem koma í skoðun á kvennadeild eru í dag flestar ómskoðaðar. Þannig er hægt að átta sig á umfangi ýmissa sjúkdóma, bæði góðkynja og illkynja. Þá er ómskoðun mikilvæg þegar upp koma vandamál tengt snemmþungun eða vegna legslímuflakks. Hermirinn er hugsaður sem þjálfunartæki fyrir lækna og læknanema til að ná góðum tökum á grundvallartækni í ómskoðun. Það er ómetanlegt að fá ítarlega kennslu og auka þannig hæfni og öryggi við greiningu á ýmsum vandamálum í kvenlíffærum. Það liggur í hlutarins eðli að rétt greining getur sannarlega í ákveðnum tilfellum bjargað mannslífum, sér í lagi ef næst að greina erfið tilfelli á frumstigum. Með því að taka þátt í hlaupinu í ár leggið þið okkur lið í að aðstoða Landspítalann við að verða leiðandi í þróun þeirra á ómtækninni og þeirri mikilvægu vinnu við að auka gæði og þjónustu spítalans með velferð skjólstæðinga sinna að leiðarljósi.