Styrktartónleikar til minningar um Bergrúnu Jóhönnu Borgfjörð

Styrktartónleikar til minningar um Bergrúnu Jóhönnu Borgfjörð

Vera Víðisdóttir
Þann 4.desember 2022 hélt Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir styrktartónleika til
minningar um móður sína, Bergrúnu Jóhönnu Borgfjörð. Bergrún Jóhanna greindist með krabbamein árið 2002 og lá leið hennar og fjölskyldu hennar endurtekið inn á
kvenlækningadeildina í 10 ár. Hún lést þann 4. desember 2012 á kvennadeild
Landspítala umvafin ástvinum og einstöku starfsfólki deildarinnar sem hafði annast
hana af hlýhug. Á tónleikunum óskaði Aldís Fjóla eftir frjálsum framlögum tónlistagesta til að heiðra minningu móður hennar. Alls söfnuðust 316.500 kr. Líf færir Aldísi Fjólu bestu þakkir fyrir sýndan hlýhug og mun upphæðin koma að góðum notum á Kvennlækningardeild í minningu Bergrúnar Jóhönnu
Aftur á bloggið